Persónuvernd
Síðast uppfært 3. september 2026.
Hvaða gögn eru varðveitt?
Matarspor varðveitir þær upplýsingar sem þú velur að skrá, svo sem aðgangsupplýsingar, prófíl, líkamsmælingar, næringarmarkmið, matardagbók, uppskriftir og heimilisbirgðir.
Hvernig eru gögnin notuð?
Gögnin eru notuð til að veita þér virkni Matarspors. Þau eru ekki seld. Matar- og heimilisgögnum er aðeins deilt þegar þú velur það; líkamsmælingar og dagbók eru persónuleg nema þú veitir sérstakan aðgang.
Innskráning og hýsing
Supabase hýsir gagnagrunn og auðkenningu og Vercel hýsir vefinn og keyrslu bakendans. Ef þú velur Google-innskráningu fær Matarspor grunnupplýsingar um Google-aðganginn þinn, svo sem netfang og nafn, til að auðkenna þig. Matarspor fær ekki Google-lykilorðið þitt.
AI-lestur og matvælagrunnar
Þegar þú velur sjálf/ur að lesa inn uppskrift, skjal eða vörumynd eru viðkomandi texti og myndir send til OpenAI, beint eða í gegnum Vercel AI Gateway, til úrvinnslu. Ekki senda inn viðkvæmar persónuupplýsingar sem eiga ekki erindi í uppskrift eða vöruskráningu. Leitarorð um hráefni geta verið send til USDA FoodData Central til að finna næringargildi. Staðfestar niðurstöður eru vistaðar í þínu matvælasafni svo ekki þurfi að sækja þær aftur.
Varðveisla og eyðing
Gögn eru varðveitt meðan aðgangurinn er virkur eða þar til óskað er eftir eyðingu. Þú getur sótt afrit af gögnum þínum úr appinu. Beiðnir um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu má senda á stuðningsnetfangið sem birtist á Google-samþykkisskjánum.
Öryggi og ábyrgð
Aðgangsstýring og Row Level Security eru notuð til að aðgreina gögn notenda. Engin nettengd þjónusta getur þó tryggt algert öryggi; notaðu sterkan aðgang og verndaðu tækin þín.